Sóðapjásurnar

Gúgú ;)

08.07.2008 15:00:20 / Birna bjútí

Þar hafiði það..

Takk kærlega fyrir frábært kvöld í síðustu viku pjásur kærar, það vantaði bara Söru! Héðan í frá held ég að við munum allar þora að mæta aftur í mat til Aggie, en ég verð að viðurkenna að ég var pínu smeyk við þetta - setti standardana ekki hærra en smartís- og hlaupbangsasalat.. Böd it vos looovlí, takk enn og aftur fyrir mig og mína.

Aaaallavega, ég sá ekki betur en að sóðalimra nokkur sem samin var um okkur yndismeyjarnar hafi eitthvað verið farin að rykfalla, enda hafa hrukkurnar gert allt annað en að fækka á síðustu árum (og minni ég hér með á afmæli mitt sem verður á þeim fallega degi fimmtudegi og haldið verður með pompi og prakt um helgina svo þið vitið hvert á að mæta). Ég ákvað því að birta hana aftur.

Hefst þá lestur.


Eðli sóðapjásunnar

Út á lífið höldum við,
tamið höfum við þann sið.
Mættar allar,
greddan kallar.
Komnar erum á strákamið.

Komdu kallinn, komdu fljótt,
klukkan tifar títt og ótt.
Bíð ég spennt,
hér útglennt.
Skal ég fá það nú í nótt.

Drekka, daðra, sjúga, sleikja,
og hamast á þeim bleika.
Sprauta rjóma,
upp í góma.
Hún fullnægð fer að reykja.

Ringluð vaknar þessi tjása,
við hlið sér hefur hún hann Ása.
Týndur þvengur,
út hún gengur.
Hún er með sanni sóðapjása.

© Birna Sif og Sara Rós


Þar hafiði það, þetta dýrindisljóð var samið á kassanum í Perlunni. Sara reið á vaðið með fyrstu tvö erindin og svo sló ég botninn. Ég held að þetta hafi bara elst vel, eins og gott rauðvín graðar sóðapjásur.

Yfir og út, lof jú gæs.


 




» 3 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 14:54:36 / aggie

HITTINGUR

Hæ pjásurnar mínar,
nú er komið að hitting heldur betur. Ég er að spá í að bjóða bara heim í mat, hvort sem það er virkur dagur eða helgi (best fimmtudagur kannski bara!!!) ....eða Vegó
leggið inn komment hvenær hentar best fyrir ykkur

kv. Yfirsóðarinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 16:02:11 / Sara

Fyrsta frú sóðapjása



Þá er komið af ykkur...
1 down 3 to go

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 16:30:04 / Sara

Typpasnuð og tannbursti

Já eins og bara sóðapjásu er lagið þá fékk ég þetta fína gæsapartý með gjöfum og tilheyrandi, og þótti mér ekki við annað hæfi en að smella einni mynd af góðgætinu sem ég fékk.


sexy undirföt, typpasnuð, typpabjórflöskutappa, og typpatannbursta!!!! Hahahaha

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 13:47:52 / Birna bjútí

Dauð síða!

Síðan er að deeeeyyyyyjaaaa!
 
Hvað þarf að gera til að lífga upp á síðuna? Vera með spilandi klámvídjó hér 24/7? 
 
 
 
...annars þekki ég einn ógó sætan gæja fyrir ykkur single gellur.. Hitti hann í sturtunni í Laugardalslauginni (ég fór "óvart" klefavillt).. Síminn minn klikkaði reyndar eitthvað í myndatökunni svo ég náði ekki andlitsmynd... En ég náði þessari:
                                                                               
 
Endilega látið mig vita ef þið viljið númerið hans.. Hann heitir Vigfús og er ógó skemmtó og ógó mikið krútt..  
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 14:25:34 / aggie

BIG BEN ÞAGNAR

ERUÐI EKKI AÐ GRÍNAST, HVER AF YKKUR SÓÐAPJÁSUM STENDUR FYRIR ÞESSU!?!??!!?;)

 

"Hinir frægu klukknahljómar Big Ben í London þögnuðu í morgun þegar viðamikil viðhaldsvinna og hreinsun klukkuturnsins hófst. Mun Ben vera þögull næsta mánuðinn á meðan framkvæmdirnar standa yfir.

Vonast er til þess að sjálf klukkan verði farin að ganga aftur síðar í dag þegar búið er að koma fyrir nýjum rafmagnsbúnaði í klukkuturninum. Turnbjöllurnar munu hinsvegar ekki láta í sér heyra næstu sex vikurnar."

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1284910


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 17:32:11 / aggie

Hittingur!!!

Hæ stelpur,

var að spá í hvort við ættum að hittast frekar 21. júlí og fara á Dans á Rósum á Players (upphitun fyrir þjóðhátíð:) )

Látið heyra í ykkur og vita hvort þið viljið og komist þá?

Það væri stemmari...

bkv. Agga overpjas 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 21:37:10 / Sara

Í villta vestrinu með hatt í skóm!

Ég elska hatta. Ég á töff svartan hatt. Flottan vetrahatt. Flottan sumar hatt. Tvo töff afalega hatta. Ég á 5 flotta hatta. En engan kúrekahatt.

Ég elska líka skó. Ég á fína rauðbleika skó. Flotta brúna hælaskó. Flott há leðurstígvél. loðskinnsstígvél fyrir kaldar tásur á veturnar. Á nokkra strigaskó. Nokkra fína ekki-hæla skó. Ég á 12 pör af skóm. En engin kúrekastígvél.

En ég hef skotið úr byssu. Með kúreka mér við hlið. Er það ekki bara nokkuð gott?


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 14:03:06 / Birna bjútí

Partý í Gesthouse Sunna?

sunna.is

Af því að það að læra þýsku (og sjálfræði og íslensku og stærðfræði) er ekki efst á óskalistanum í dag, ákvað ég að prófa lénin; birna.is, agnes.is, sunna.is, sara.is og idunn.is (frumlegt, ekki satt?)

Það væri nú kannski ekki frásögufærandi nema hvað.. www.birna.is er til og sýndist mér í snöggu bragði að þar væri um bloggsíðu læðunnar Birnu að ræða, lénið www.sunna.is var líka til, reynist það vera Gesthouse Sunna, og www.idunn.is verður að bókaútgáfunni Eddu!

idunn.is

Jahså, þar hafiði það! Nú er aldeilis pressa á Agnesi og Söru ef þið viljið vera jafn kúl og við hinar, reynið að selja einhverjum ríkum og foxy pungun lénin ykkar, og ef þeir eru úber foxy, reynið þá að svíkja út nokkrar nektarmyndir af þeim í leiðinni..

P.S. Sunna og Iðunn, við skulum kaupa okkur bækur frá Eddu útgáfu og lesa þær í kósíheitum í Gesthouse Sunnu og leyfa Birnu litlu að mala við fæturnar á okkur á meðan..

 

 

birna.is

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 00:57:02 / aggie

brasilía

Sælar pjásur og takk fyrir seinast. Þessir hittingar hjá okkur eru alltaf jafnmikil bingó. En heyriði...

núú er ég svakalega spennt að vita hvernig ykkur fannst in Brazil? in details takk...og látið svo eina mynd af hittingnum.

Svo er næsta dagsetning 20. júlí ...muna að taka frá.

 kveðja, Agga overpjás.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:08:32 / Sunna

Gamlir tímar

Blessaðar skvísur:) Mig langaði að gera þessa síðu aðeins notalegri.. híhí:) Vá! ekkert smá erfitt, kann sko ekkert á svona bloggsíðu (fékk sma hjálp frá litlu frænku.. híhí)

Allavega..ALLIR að taka frá fimmtudaginn 17. maí!:) Stefnum að hittingi þá:) Pottþétt! Ég er að pæla bara að bjóða ykkur heim:) ef það gengur ekki þá kíkjum við bara á vegamót;)

Hér koma nokkrar myndir frá gömlum tíma.. Algjör snilld :) hahah

Sexy mama!!!

Sunna að drepa Iðunni!

 

Myndin af liðinu

Það hljóp einhver púki í Geira!!

hahaha

uu já.. orgían mikla!!!

Mummi að tjá sig

Hjá Sunnu 016

Hjá Sunnu 041

DSC 0005

DSC 0016

DSC 0015

 

Það er gaman að rifja upp gamla og góða tíma:) Hlakka til að hitta ykkur fljótlega:)

Eitt að lokum!! Það er ALLT til!! Myspace Lovestory!! hahahahaha!!

http://www.youtube.com/watch?v=P81zxfuIOnU

 Bestu kveðjur Sunna skvís

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 19:22:06 / Sara

Hverjum líkjumst við???

Jæja, fyrst að Birna er ekki að standa sig í þessari ögrun, þá ætla ég að reyna að lífga þessa síðu við, man ég þá daga er ég kíkti á þessa síðu og sá ég þá ný blogg, brandara, fréttir, slúður og fleira sem ungar pjásur þurfa á að halda til að lífga upp á hversdaginn. Hvað kom fyrir??? Endilega bloggiði kellingarnar mínar, þetta tekur nokkrar mínútur en er svo afskaplega skemmtilegt, enda erum við svo úber fyndnar og sexy! hey talandi um hvað við erum sexy, þá er þetta nýja uppáhaldssíðan mín, www.myheritage.com og eftir að hafa sett inn nokkrar myndir af sjálfri mér og birt útkomuna á myspace síðunni minni, þá ákvað ég nú að setja inn pjásumyndir og sýna ykkur nú hvaða celebrity þið líkist ;)  og commenta svo ;)

 

hahahahaha, tjekkið á alvöru tvífara mínum á 123.is síðunni minni, sem by the way, er fædd 27. september 1983!!! daginn eftir minn fæðingardag! frekar freaky, sérstaklega þar sem hún er líkari mér en systkini mín eru.. og hún er alls ekki náskyld mér...

En gellur þið meigið taka þetta sem spark í rassinn fyrir slakan bloggáhuga... ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 16:29:18 / aggie

GLEÐILEGT NÝTT ÁR PERLUDÖMUR

pjasudjamm 007

TAKK FYRIR FRÁBÆRAR PJÁSUSTUNDIR, ÓGLEYMANLEGAR!!!

SKORA Á BIRNU AÐ KOMA MEÐ ÁRAMÓTA-OG/EÐA NÝÁRSPISTIL  EINS OG HENNI ER EINNI LAGIÐ!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 23:05:05 / aggie

grüsse von Karlsruhe

 Sælar Sóðapjásurnar mínar,
langaði rétt að kasta á ykkur kveðju úr landinu þar sem framleiddar eru bestu klámmyndirnar í heiminum í dag! Þeir eru sko ekkert að fela klámiðnaðinn hérna, hér eru allskyns  tæki og tól til sölu á grænmetismörkuðum t.d. sjáiði t.d. þessa mynd sem ég tók á Stuttgart Volkfest;

Þetta er alveg ótrúlega fljótt að líða...enda alltaf of fljótt að líða þegar það  gaman. Reyndar er þessi lífsstíll mér ofviða. Erasmus fylgir mikil drykkja og ég er ekki að ýkja að hér drekk ég meira en Perlusumarið mikla 2004. Enda í AA með skorpulifur ef þetta heldur svona áfram. Heimþráin er hinsvegar búin að vera gífurleg seinustu tvær vikur en þá hefur líka hægst á tímanum og mig langar bara heim til pjásanna minna!;)

Heyri í ykkur, endilega skrifið mér smá pistil hérna. Eitthvað fréttnæmst frá Fróni. Sunnar og Iðunn sérstaklega. Það er nú varla svo mikið að gera í menntó!!!;)

Læt eina mynd frá alvöru Volkfest fylgja (októberfest);



» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 22:22:45 / Birna bjútí

Snilldin uppmáluð!

Elsku pjásurnar mínar, ef ykkur vantar einhvern tímann eitthvað til að gleðja ykkur, þá finnið þið það hér: http://www.youtube.com/watch?v=0FfmQG5P6_g

 - Kíkið á þetta, þið munuð ekki sjá eftir því ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Síður svala fólksins